Tillaga Flokks fólksins að þverun verði bætt frá Edition hótel og yfir Geirsgötuna vegna mikillar umferðar hefur verið vísað frá. Rökin eru þau að yfir Geirsgötu eru nú þrjár ljósastýrðar gönguþveranir í nágrenni Kolaportsins. Ein gönguþverun er við gatnamót Geirsgötu og Kalkofnsvegar, önnur gönguþverun er við gatnamót Geirsgötu og Reykjastrætis og þriðja gönguþverunin er til móts við Hafnarhúsið /Naustin. Segir í svari að á næstu vikum er gert ráð fyrir að ein ljósastýrð gönguþverun bætist jafnframt við á gatnamótum Steinbryggju, Bryggjugötu og Geirsgötu. Fulltrúi Flokks fólksins vonar að þetta dugi til að tryggja öryggi vegfarenda.