Hér er verið að svara meira en ársgamalli fyrirspurn. Ef horft er á hraðahindranir í Reykjavík þá eru þær alls konar, en samt er farið eftir norskum leiðbeiningum. Í íbúðagötum og nálægt skólum þarf að gæta alls umferðaröryggis. Þar eiga tafir rétt á sér enda öryggi barna númer eitt. Á stofnbrautum ætti að gera allt til að valda ekki óþarfa töfum. Ljósastýringar sem virka vel vantar víða. Óþarfa þrengingar mætti sleppa eins og á Grensásvegi og Háaleitisbraut. Af svari að dæma má sjá vandræðagang og er margt óljóst og loðið. Það er eins og borgin hafi engan heildstæða stefnu í hraðahindrunum. Það eru koddar, þrengingar, miðeyja, bungur, upphækkanir. Í svari má víða sjá að hitt og þetta liggur ekki fyrir eða er óákveðið:„ Skrifstofan vinnur nú að tillögu að umferðaröryggis aðgerðum ársins en fjöldi og staðsetning þeirra aðgerða liggur ekki fyrir að svo stöddu“. „Tillögur að umferðaröryggis aðgerðum ársins 2022 liggja ekki fyrir og ekki er búið að ákveða endanlega hvaða lausnir eða gerð hraðahindrana verður notast við“ og „Ekki liggur fyrir hversu stór hluti fyrirhugaðra umferðaröryggis aðgerða mun snúa að hraðahindrunum“. Sem sagt margt sem ekki liggur fyrir. Hvað með hraðamyndavélar sem valkost?