Fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir rökum skipulagsyfirvalda um að taka 12 bílastæði við Brávallagötu undir rafbílastæði án samráðs við íbúa. Framkvæmdir hófust án nokkurs samráðs eða samtals við íbúa. Rök eru fyrir þessum framkvæmdum en þau koma sumum illa svo sem eins og gengur. Í þessu tilfelli hefði átt að ræða við íbúa götunnar í stað þess að hefja verk án nokkurs samráðs. Fólk sem þarna býr þarf að leggja bílum sínum einhvers staðar og þarna eru mikil þrengsli. Þessi aðgerð sýnir alls enga lipurð. Þarna býr fólk með mismunandi efnahag og það er vitað að rafbílar eru enn í dýrari kantinum og ekki á færi allra að eignast. Í framtíðinni verða rafmagnsbílar eflaust algengir og kostur fyrir efnalítið fólk og þá má að aðlaga bílastæði að þeim veruleika að fullum krafti. Engu að síður er það kurteisi að tala við íbúa um mál af þessu tagi áður en ráðist er í framkvæmdir.