Fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, um álit umboðsmanns Alþingis um að hreyfihamlaðir megi leggja í almenn stæði á göngugötum, umsögn - USK21120055         Mál nr. US210310
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 134
6. apríl, 2022
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar, dags. 25. mars 2022.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins spurði um viðbrögð skipulags- og samgönguráðs við áliti umboðsmanns Alþingis um að hreyfihamlaðir megi leggja í almenn stæði á göngugötum? Svar/umsögn hefur borist og er lögð fram á fundi ráðsins 6.4. Það er ánægjulegt að verklag sé nú í samræmi við lög en eftir sem áður er það miður að borgin hafi ekki verið með framkvæmdina á hreinu og að það hafi þurft aðkomu Umboðsmanns Alþingis til að leiðrétta augljóst óréttlæti.
Svar