Lagt er til að í samráði við íbúa farið verði í stórátak í öryggi gangandi í Norðlingaholti. Lagt er til að þar sem þörfin er mest verði lagðar snjallgangbrautir. Tillögunni fylgir greinargerð.
Svar
Vísað til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar.