Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi fyrirspurn, um Smyrilshlíð         Mál nr. US220023 Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi í
Bryggjugötu 4
Síðast Frestað á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 128
9. febrúar, 2022
Frestað
Fyrirspurn
Fyrirspurn Flokks fólksins um  merkingar á vistgötu og sektir í aðkeyrslu að Edition Hótel við höfnina. Aðkeyrslan að hótelinu er þannig að það er pláss fyrir bíla á svokallaðri vistgötu en þarna er merkingum ábótavant og óljóst hvort megi leggja þarna. Dæmi eru um að fólk hafi lagt þarna í góðri trú til að sinna erindum en fengið síðan háa sekt. Þarna er bann við lagningu í vistgötu nema í sérmerktum stæðum en litlar sem engar merkingar eru um að þarna sé vistgata og óheimilt að leggja. Fulltrúi Flokks fólksins fékk þá upplifun við að heyra lýsingar fólks sem lent hafa í þessu að það sé eins og verið sé að að leiða fólk í gildru. Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir upplýsingum frá Bílastæðasjóði um merkingar á þessari götu og á þessum stað nákvæmlega sem er Bryggjugata (101) 4 og hvort talið sé að þær séu nægjanlegar? Óskað er einnig upplýsinga um hvað margir hafa verið sektaðir nákvæmlega þarna á þessum svæði sem fyrirspurnin snýr að?
Svar

Frestað.