Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 131
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 7. mars 2022.
Tillagan er felld. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.
Fulltrúar Viðreisnar og Samfylkingarinnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Eins og fram kemur í umsögn sviðsins eru djúpgámalausnir almennt tæplega mögulegar á reitnum vegna plássleysis í borgarlandi og flókins lagnanets neðan yfirborðs. Tillagan er því felld.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að fundinn verði staður fyrir djúpgáma við Hlemm.  Við Hlemm býr fólks sem átt hefur í mesta basli með að koma frá sér sorpi. Einnig var lagt til að íbúum Hlemm verið gefið formlegt leyfi til að aka bíl sínum upp að dyrum til að afferma vörur/vistir eða ef flytja þarf þunga hluti inn á heimilið. Tillagan er felld. Í svari er gengist við vandamálinu með sorpið og nefnt að mögulega sé hægt að leysa málið með sameiginlegri sorpgeymslu á vegum húseiganda, innan þessara lóða. Í bókun meirihlutans er vandamálið sagt vera plássleysi og flókið lagnanet. Vandamálið er skilgreint og af hverju er þá ekki gengið í að leysa það? Ekki er brugðist við tillögunni, hvorki í svari né bókun hvort íbúar getið ekið bíl sinum að dyrum til að afferma vörur. Af svari má almennt skilja sem svo að það skortir alveg samráð við þá íbúa við Hlemm sem búa á reitnum sem  afmarkast af Hlemmi, Snorrabraut og Hverfisgötu. Framhaldstillaga Flokks fólksins er að skipulagsyfirvöld hafi viðhlítandi samráð við þessa íbúa og leysi bæði þessi vandamál.