Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 130
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um matvöruverslun í Úlfarsárdal ásamt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. 28. janúar 2022 um tillöguna.
Tillögunni er vísað frá. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.Fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingarinnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:
Bygging matvöruverslunar við Skyggnisbraut er þegar komin af stað. Við Jarpstjörn er jafnframt gert ráð fyrir húsnæði fyrir stórmarkað eins og kemur fram í umsögn sviðsins og við Urðartorg býður jarðhæð upp á fjölbreytta starfsemi svo sem veitingastað, kaffihús eða bakarí.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tillögu Flokks fólksins um að borgar- og skipulagsyfirvöld beiti sér fyrir að matvöruverslun/verslanir komi í Úlfarsárdal hefur verið vísað frá. Úlfarsárdalur, hverfið er 15 ára og enn bólar ekki á matvöruverslun né kaffihúsum og skyndibitastöðum. En í svari segir að margar lóðir séu skipulagðar til að sinna þessu og ,, öll húsin á lóðinni eru í uppbyggingu núna”. Eru 15 ár ekki nægjanlega langur tími til að taka ákvörðum um matvöruverslun og getur verið að eitthvað annað hamli uppbyggingu, svo sem að langur tími fer í ganga frá göngustígum? Hverjar svo sem ástæður eru fyrir að hverfið er ekki orðið sjálfbært er kominn tími til að spýta í lófana þarna. Það er ekki eins og vanti möguleikana eða tækifærin.