Síðast Samþykkt á fundi fyrir 4 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 127
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 18. janúar 2022 varðandi breytingu á deiliskipulagi Slippa- og Ellingsenreits vegna lóðarinnar nr. 9 við Geirsgötu. Í breytingunni felst að skipulagssvæði Vesturbugtar er stækkað þannig að Geirsgata 9 verði hluti af reit 8 á skipulagssvæðinu ásamt því að gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit í anda verbúðanna við Geirsgötu 3-7 í samræmi við gildandi rammaskipulag Graeme Massie arkitekta um þéttingu byggðar í Gömlu höfninni, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf. dags. 18. janúar 2022. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sitja hjá.Vísað til borgarráðs.

(B) Byggingarmál