Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Vísað til borgarráðs.
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Það skýtur skökku við að Reykjavíkurborg taki þátt í því að hindra frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma með því að leyfa uppbyggingu íbúða á þessum reit. Ekki það að það ríkir neyðarástand í Reykjavík þegar kemur að uppbyggingu íbúða en það er sama neyðarástand þegar kemur að hjúkrunarheimilum. Það myndi skila miklum samlegðaráhrifum að halda sig við fyrra leyfi að þessi reitur væri eingöngu fyrir hjúkrunarrými.
Lilja Grétarsdóttir verkefnastjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
- Kl. 9:25 vék Marta Guðjónsdóttir af fundi.- Kl. 9:25 tók Ólafur Kr. Guðmundsson sæti á fundinum.