Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Skipulags- og samgönguráð nr. 24
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Eggertssonar dags. 23. október 2018 ásamt greinargerð dags. 22. október 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skildinganess vegna lóðarinnar nr. 30-32 við Einarsnes. Í breytingunni felst að heimilt verði að stækka efri hæð íbúða með því að byggja út á hluta þaksvala, nánar tiltekið yfir bílgeymslu beggja íbúða, samkvæmt uppdr. KRADS ehf. dags. 19. október 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 8. nóvember 2018 til og með 6. desember 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Kristín María Guðjónsdóttir dags. 20. nóvember 2018. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2019.
Svar

Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. janúar 2019. 
Vísað til borgarráðs.

Gestir
Guðlaug Erna Jónsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
102 Reykjavík
Landnúmer: 106771 → skrá.is
Hnitnúmer: 10008671
Síðasta markaðsverð
95.000.000 kr.
Sérbýli · 221 m² · 01.12.2020
Kaupskrá 1 eign
95.000.000 kr. 01.12.2020
Sérbýli · 221 m² · 4 herb. · bygg. 1963 · HMS
Deiliskipulag
Skildinganes
Samþykkt 24.02.2004 · Deiliskipulag. Nýtt DSK