Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins bókar: Miðflokkurinn tekur heilshugar undir athugasemdir íbúa hvað varðar fjölda íbúða í fyrirhuguðu breyttu deiliskipulagi við Furugerði, með tilheyrandi vandamálum sem ljóst er að fylgja.Að fjölga íbúðum úr 4 – 6 í 32 er ekki ásættanlegt.Miðflokkurinn leggur til að fundin verði lausn í sátt við íbúa, td. með fækkun íbúða, lækkun bygginga ofl.