Á fundi skipulagsfulltrúa 7. ágúst 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 28. júlí 2015 þar sem spurt er hvort breyta megi verslunarhúsnæði í fæðingaraðstöðu og -fræðslu á 1. hæð í húsi á lóð nr. 10 við Síðumúla. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. ágúst 2015.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. ágúst 2015.