Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. nóvember 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun hússins úr verslunar- og skrifstofuhúsi í gististað í flokki II tegund b fyrir alls 76 gesti, um er að ræða áður gerðar breytingar í húsi á lóð nr. 3-3a við Stangarhyl. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019. Erindinu fylgir bréf hönnuðar dags. 20.11.2018 þar sem sótt er um breytta notkun á húsnæðinu. Gjald kr. 11.000
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019. Óheimilt er að vera með gististarfsemi í kjallara og á jarðhæð.