Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 10. desember 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn
Ölbergs ehf.
um endurnýjun rekstrarleyfis í flokki III fyrir krána Moe's Bar að Jafnaseli 6. Sótt er um veitingatíma áfengis til kl. 01:00 virka daga og til kl. 03:00 um helgar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.
Svar
Jákvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.