Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2012 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja og stækka svalir sem fjarlægðar hafa verið vegna fúa á annarri hæð fjölbýlishúss á lóð nr. 15 við Bjargarstíg. Meðfylgjandi er samþykki eigenda dags. 20. nóvember 2011. Gjald kr. 8.500