Á fundi skipulagsfulltrúa 21. febrúar 2014 var lögð fram umsókn
RFL ehf.
dags. 10. janúar 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Njálsgötureits vegna lóðanna nr. 62 við Grettisgötu og nr. 20A við Barónsstíg. Í breytingunni felst sameining lóða og hækkun á þaki, samkvæmt uppdr. teiknistofunnar Gingi dags. desember 2013. Umsókninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2014.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. febrúar 2014 samþykkt.