Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Norðurfara dags. 28. nóvember 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða vegna lóðanna að Eirhöfða 8, Breiðhöfða 15 og Eirhöfða 2-4. Breytingin gengur m.a. út á breyttar innkeyrslur fyrir lóðirnar, skv. uppdr.
Landslags ehf.
dags. 25. nóvember 2013. Tillagan var grenndarkynnt frá 18. desember 2013 til og með 29. janúar 2014. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar