Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Haralds Rafns Pálssonar, mótt. 6. janúar 2017, varðandi rekstur gististaðar í flokki II í húsinu á lóð nr. 16 við Skólavörðustíg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2017.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. febrúar 2017, samþykkt.