Á fundi skipulagsfulltrúa 29. apríl 2015 var lögð fram fyrirspurn
Atelier arkitekta slf.
f.h.
Íslandshótels hf.
dags. 28. apríl 2015 varðandi breytingu á notkun jarðhæðar hússins á lóðinni nr. 41 við Rauðarárstíg úr verslun og þjónustu í fimm hótelherbergi, samkvæmt tillögu
Atelier arkitekta slf.
dags. apríl 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2015.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 8. maí 2015.