Á fundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingafulltrúa frá 2. desember 2014 þar sem spurt er hvort heimilt sé að breyta skrifstofurýmum í gistiherbergi og fá leyfi fyrir rekstur gistiheimili í flokki II í húsinu á lóð nr. 7 við Funahöfða. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2014. Bréf frá hönnuði ódags. og ljósmyndir fylgja.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 12. desember 2014.