Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Bjarna Snæbjörnssonar
dags. 26. september 2019 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 29 við Nýlendugötu. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum hússins úr 5 íbúðum í 7 íbúðir, koma fyrir svölum á suðurhlið hússins og koma fyrir lyftu í húsinu, samkvæmt uppdrætti bj snæ arkitekta dags 26. september 2019 br. 11. desember 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 7. janúar 2020 til og með 4. febrúar 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.