Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. desember 2016 var lögð fram umsókn Björns Skaptasonar, mótt. 25. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 34-36 við Borgartún. Í breytingunni felst að lóðin er stækkuð til suðurs og vesturs, heimiluð er fjölgun íbúða en sett kvöð um verslunarrými á 1. hæð við Sóltún, bílastæði verða flest neðanjarðar, heimilt verður að hækka hluta húsanna, auka nýtingarhlutfall og rífa öll húsin á lóðunum, samkvæmt uppdr.
Atelier Arkitekta slf.
, dags. 11. nóvember 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Mannvits um hljóðvist, dags. 9. september 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.