Á fundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Emblu Ýr Bárudóttur dags. 13. febrúar 2015 varðandi enduruppbygging þaks með hækkun mænis, byggingu kvista á norður- og suðurhlið ásamt byggingu svala á suðurhlið hússins á lóðinni nr. 16A við Bergþórugötu. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. febrúar 2015.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. febrúar 2015.