Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja og lyfta húsi, byggja nýja jarðhæð úr steinsteypu og byggja viðbyggingu á þremur hæðum sunnan og austan húss og til að innrétta verslun á jarðhæð og níu hótelherbergi og tvær íbúðir í húsi á lóð nr. 70 við Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2015. Erindi fylgja umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 25. febrúar 2015 og varmatapsútreikningur ódagsettur. Stækkun: 296,5 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. apríl 2015.