Á fundi skipulagsstjóra 30. september 2011 var lögð fram fyrirspurn Davíðs Pitt dags. 28. september 2011 um fjölgun íbúða í húsinu að Bergstaðastræti 44. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 6. október 2011.
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið með vísa til umsagnar skipulagsstjóra. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.