Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Gylfa Sigfússonar dags. 16. maí 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna lóðarinnar nr. 46 við Leiðhamra. Í breytingunni felst að núverandi hús verði staðsett á lóðinni í samræmi við upphaflegt mæliblað, stækkun á byggingarreit til norðurs o.fl., samkvæmt uppdr. Guðmundar Gunnlaugssonar ark. dags. 14. maí 2012. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. maí til og með 25. júní 2012. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.