Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2019 var lögð fram fyrirspurn Arnar Helgasonar dags. 2. desember 2019 ásamt bréfi dags. 26. nóvember 2019 um að breyta skrifstofurými á 4 hæð hússins á lóð nr. 15 við Stórhöfða og millilofti yfir 4. hæð í áfangaheimili með 22-24 herbergjum ásamt studioíbúð, eldhúsi, þvottahúsi, böðum og salernum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2019.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. desember 2019 samþykkt.