Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn T.ark
Arkitekta ehf.
, mótt. 5. apríl 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.141.2 vegna lóðarinnar nr. 3 við Templarasund og nr. 4 við Kirkjutorg. Í breytingunni felst að bætt er við takmörkuðum byggingarreit í inngarði undir svölum við austurhlið Templarasunds 3. Byggingarreiturinn takmarkast við 1. hæð og kemur til með að innihalda stoðrými við rekstur á jarðhæð húsanna, samkvæmt uppdr. T.ark
Arkitekta ehf.
, dags. 5. apríl 2017. Tillagan var auglýst frá 13. júní 2017 til og með 25. júlí 2017. Engar athugasemdir bárust.