að lokinni grenndarkynningu er lögð fram umsókn Ólafs Hauks Símonarsonar dags. 11. júlí 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.184.1 vegna lóðarinnar nr. 8 við Spítalastíg. Í breytingunni felst hækkun á bakbyggingu, samkvæmt uppdr.
Egg arkitekta ehf.
dags. 3. júlí 2013. tillagan var grenndarkynnt frá 18. júlí til og með 15. ágúst 2013. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.