Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. maí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að stækka glugga á vestanverðri þakhæð fjölbýlishúss á lóð nr. 13 við Sóleyjargötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júní 2019. Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 15. og 16. apríl 2019. Gjald kr. 11.200
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. júní 2019 samþykkt. Samhliða er umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. maí 2019 dregin til baka..