Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. október 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja staðsteypta viðbyggingu við vestur- og suðurhlið hússins á lóð nr. 22 við Sogaveg. Erindi var grenndarkynnt frá 31. október 2017 til og með 28. nóvember 2017. Engar athugasemdir bárust. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2017. Stækkun : 31.8 ferm., 103,4 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.