Á fundi skipulagsfulltrúa 18. október 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 15. október 2013 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta verslunarhúsnæði (rými 0101) í íbúð í verslunar- og fjölbýlishúsinu á lóðinni nr. 10 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Samþykki nokkurra meðeigenda (á teikn.) fylgir erindinu. Gjald kr. 9.000 Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. október 2013.
Svar
Synjun samkvæmt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. október 2013.