Á fundi skipulagsfulltrúa 5. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Opus fasteigafélags ehf., mótt. 12. janúar 2016, um að gera nýja aðkomu/innkeyrslu á lóð nr. 13A við Skútuvog frá Kleppsmýrarvegi. Innkeyrslan yrði gerð við hliðina á nýlegri aðkomu/innkeyrslu að baklóð Brúarvogs 1-3 og tenging við gatnakerfið yrði sameiginleg. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Vísað til umsagnar Faxaflóahafna og Samgöngustjóra. Óskað er eftir að umsögnin berist innan þriggja vikna.