Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt um leyfi til að byggja garðstofu, koma fyrir svölum ofan á garðstofuna þar sem gengið er út frá 1. hæð, breyta innra skipulagi íbúðar í kjallara og breyta útliti á stofugluggum í kjallara í húsinu á lóð nr. 32 við Háteigsveg. Erindi var grenndarkynnt frá 3. október 2018 til og með 31. október 2018. Engar athugasemdir bárust. Bréf frá eigendum hús þar sem hönnuður er veitt leyfi til að sækja um byggingaleyfi fyrir breytingum á húsinu dags. 12. júní 2018. Stækkun vegna garðstofu er: XX ferm., XX rúmm. Gjald kr. 11.000
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar. Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.