Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Hildar Birkisdóttur, mótt. 6. apríl 2017, varðandi rekstur gististaðar í flokki II í húsinu á lóð nr. 79 við Laufásveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2017.