Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi
ALMC hf.
dags. 6. febrúar 2012 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallar-, Veg- og Ármúla vegna lóðanna nr. 8 og 10 við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst breyting á bílastæðakröfum, samkvæmt uppdrætti
VA arkitekta ehf.
dags. 13. febrúar 2012. Tillagan var auglýst frá 7. mars til og með 24. apríl 2012. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.