Á fundi skipulagsstjóra 25. febrúar 2011 var lögð fram fyrirspurn Jóns Brynjólfssonar dags. 22. febrúar 2011 ásamt bréfi dags. 18. janúar 2011 varðandi stækkun á íbúðarhúsnæði og byggingu bílskúrs. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 10. mars 2011.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar hún berst.