Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. júní 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. júní 2018 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta notkun skrifstofurýmis á 3. hæð í gististað í flokki II, teg. íbúð fyrir sex gesti í húsi á lóð nr. 16 við Bræðraborgarstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2018.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2018.