Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. nóvember 2018 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir matarmarkaði og sex veitingastöðum í rými 0104, einum í flokki I - tegund C og fimm í flokki II - tegund C, ásamt starfsmannarými og þurrvörulager í hluta rýmis 0105 í húsi á lóð nr. 9 við Bíldshöfða. EInnig lögð fram umsögn skipulagfulltrúa dags. 30. nóvember 2018. Gjald kr. 11.000
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. nóvember 2018.