Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Freys Frostasonar, mótt. 21. mars 2017, um rekstur veitingastaðar í flokki II í húsinu á lóð nr. 65 við Laugaveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. apríl 2017.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 6. apríl 2017.