Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. apríl 2021 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 31. mars 2021 um hvort heimilt er að vera með fiskverkun (flökun) í rými 0001 í húsinu á lóð nr. 1 við Höfðabakka, samkvæmt uppdr. K.J.
Ark slf.
dags. 31. mars 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.