Á fundi skipulagsfulltrúa 5. desember 2014 var lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 1. desember 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn
Gam Management ehf.
um rekstrarleyfi í flokki II fyrir veitingastofu Gam Management að Garðastræti 37. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.