Lögð fram fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, mótt. 22. mars 2016, varðandi byggingu sólstofu við húsið á lóð nr. 8B við Óðinsgötu með aðgengi að verslun á jarðhæð og setja svalir ofan á sólstofu, samkvæmt uppdr. Páls V. Bjarnasonar arkitekts, dags. 15. mars 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. apríl 2016.
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2016.