Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 17. mars 2017 var lögð fram fyrirspurn Röðuls Kolbeins Arinbjargarsonar, mótt. 3. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Vogahverfis vegna lóðarinnar nr. 21 við Barðavog. Í breytingunni felst að skipta fasteign á lóð nr. 21 við Barðavog í þrjár íbúðir. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 24. mars 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 24. mars 2017.