Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Hans Olav Andersen, mótt. 27. júní 2017, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.3 vegna lóðarinnar nr. 86-94 að Laugavegi sem felst í stækkun á byggingarreit norðvesturhluta 4. hæðar, samkvæmt tillögu teiknistofunnar Tröð, dags. 27. júní 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. júlí 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 6. júlí 2017.