Á fundi skipulagsstjóra 25. febrúar 2011 var lögð fram fyrirspurn Dóru Takefusa dags. 23. febrúar 2011 um að setja þaksvalir á húsið að Hverfisgötu 50. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags.3. mars 2011.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsstjóra.