Á fundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. apríl 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki III, teg. A fyrir 129 gesti á 1. hæð og í kjallara og til að breyta afmörkun íbúðar 0202 í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 30 við Klapparstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 29. apríl 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Jákvætt, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29.apríl 2016.