Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Brynju, Hússjóður Öryrkjabandalagsins dags. 29. mars 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholt 3, norðurdeild vegna lóðarinnar nr. 35 við Suðurhóla. Í breytingunni felst að sambýli á byggingarreit E verði breytt í þriggja íbúða raðhús, samkvæmt uppdrætti VA arkitekta dags. 25. mars 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. apríl til og með 9. maí 2011. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.