Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. júní 2017 var lögð fram fyrirspurn Anne Marie J. Kristjánsdóttur, mótt. 16. maí 2017, um að hækka að hluta til þak hússins nr. 44 á lóð nr. 36-52 við Seljabraut og setja kvist og jafnframt svalir á lægsta hluta þaksins. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2017.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2017.